Skilmálar Albatross golfferða

← Forsíða

1 Almennt

Albatross golfferðir (hér eftir „Albatross“), info@albatrossgolf.is, er ferðaskrifstofa með leyfi Ferðamálastofu og tryggingu vegna ógjaldfærni. Skilmálarnir gilda um allar ferðir og þjónustu sem Albatross selur. Ferðalýsing, bókunarstaðfesting og skrifleg sérkjör eru hluti samnings og ganga framar skilmálunum.

Ferðir innihalda almennt gistingu, akstur og golf samkvæmt ferðalýsingu. Flug er aðeins innifalið ef það kemur skýrt fram, sjá 8. kafla.

Ekkert í skilmálunum takmarkar ófrávíkjanleg réttindi ferðamanns samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

2 Bókun

Bókun er bindandi þegar Albatross hefur staðfest hana skriflega og staðfestingargjald hefur verið greitt. Ferðamaður skal yfirfara staðfestinguna strax og tilkynna villur. Nöfn skulu vera eins og í vegabréfi. Séróskir gilda aðeins hafi Albatross samþykkt þær skriflega. Allar tímasetningar eru áætlaðar.

Sá sem bókar fyrir hóp er tengiliður hans, tekur við tilkynningum fyrir hönd hópsins og miðlar upplýsingum til þátttakenda. Afpöntun eins þátttakanda getur breytt verði annarra og er það tilkynnt áður en breytingin er staðfest.

3 Verð og greiðslur

Verð er í íslenskum krónum með sköttum og gjöldum. Við bókun greiðist 25% staðfestingargjald. Fullnaðargreiðsla skal berast eigi síðar en átta vikum fyrir brottför, eða strax sé bókað síðar. Berist greiðsla ekki þrátt fyrir áskorun telst ferðin afpöntuð, sjá 5. kafla.

Eftir bókun getur verð aðeins breyst vegna eldsneytisverðs, skatta og gjalda eða gengis, og þá jafnt til hækkunar sem lækkunar. Hækkun skal tilkynnt með rökstuðningi eigi síðar en 20 dögum fyrir brottför. Nemi hún meira en 8% má ferðamaður afpanta án gjalds.

4 Breytingar og framsal af hálfu ferðamanns

Óskir um breytingar skulu sendar skriflega og greiðir ferðamaður þann kostnað sem af þeim hlýst, enda sé hann kynntur fyrir fram. Ferðamaður má framselja ferð til annars sem uppfyllir skilyrði hennar, með tilkynningu eigi síðar en sjö dögum fyrir brottför. Báðir bera þá ábyrgð á eftirstöðvum og kostnaði við framsalið.

5 Afpöntun af hálfu ferðamanns

Afpöntun skal vera skrifleg og miðast við þann dag sem hún berst. Afpöntunarþóknun er eftirfarandi:

Tími afpöntunar Afpöntunarþóknun
Innan 7 daga frá bókun, enda séu a.m.k. 8 vikur til brottfarar 5.000 kr. þjónustugjald
Eftir 7 daga frá bókun, enda séu a.m.k. 8 vikur (56 dagar) til brottfarar Staðfestingargjaldið
Minna en 8 vikur (55 dagar eða færri) til brottfarar 100% af heildarverði ferðar

Þóknunin er þó aldrei hærri en raunverulegur kostnaður Albatross. Engin þóknun er innheimt ef óviðráðanlegar aðstæður á áfangastað hafa veruleg áhrif á ferðina, og er þá allt endurgreitt innan 14 daga.

Mæti ferðamaður ekki eða geti ekki ferðast af ástæðum sem varða hann sjálfan, til dæmis vegna ófullnægjandi ferðaskilríkja, telst það afpöntun á brottfarardegi.

6 Breytingar og aflýsing af hálfu Albatross

Albatross tilkynnir um breytingar á ferð fyrir brottför eins fljótt og auðið er. Sé breyting veruleg eða verð hækkar um meira en 8% getur ferðamaður samþykkt breytinguna eða afpantað án gjalds. Honum ber að tilkynna eins fljótt og unnt er, innan gefins svarfrests, hvort hann velur. Samþykki hann lakari þjónustu fær hann verðlækkun.

Albatross getur breytt ferð eða aflýst henni í heild vegna óviðráðanlegra atburða eða aðstæðna sem Albatross getur á engan hátt haft áhrif á, hvorki á atburðarás né afleiðingar, svo sem náttúruhamfara, alvarlegra öryggisatburða, heilbrigðisógnar, lokana yfirvalda eða óvenjulegs veðurs. Ferðamanni er þá tilkynnt um það án tafar og ber Albatross ekki skaðabótaábyrgð. Ferð er ekki aflýst vegna dræmrar þátttöku nema lágmarksfjöldi komi fram í samningi.

Við afpöntun eða aflýsingu samkvæmt þessum kafla er allt endurgreitt innan 14 daga.

7 Golf

Rástímar, vellir og fjöldi hringja koma fram í ferðalýsingu. Mæta skal eigi síðar en 30 mínútum fyrir rástíma. Missi ferðamaður rástíma af eigin völdum fer endurgreiðsla eftir reglum vallarins.

Vellir geta breytt rástímum eða skipulagi vegna veðurs, ástands vallar, móta eða viðhalds, og Albatross má gera óverulegar breytingar á rástíma eða velli. Falli leikur niður vegna veðurs reynir Albatross að finna nýjan rástíma eða völl, eða endurgreiðir það sem fæst endurgreitt frá vellinum.

Ferðamaður skal fylgja reglum valla, meðal annars um forgjöf, klæðaburð og leikhraða. Synji völlur honum um leik vegna brota á þeim fæst það ekki endurgreitt. Golfbílar og leigubúnaður eru aðeins innifaldir ef það kemur fram í ferðalýsingu, og ber notandi ábyrgð á tjóni sem hann veldur.

8 Flug

Flug er aðeins hluti af pakkaferð ef það kemur fram í bókunarstaðfestingu. Verð flugs er ekki tryggt fyrr en farmiði hefur verið gefinn út. Breytingar eftir útgáfu farmiða, til dæmis á nafni, fara eftir skilmálum flugfélags og greiðast af ferðamanni. Sé fargjald óendurgreiðanlegt kemur það fram fyrir bókun, og getur staðfestingargjald eða afpöntunarþóknun þá tekið mið af verði flugsins.

Brottfarar- og komutímar eru ávallt áætlaðir og geta breyst vegna veðurs, tæknilegra ástæðna eða annarra óviðráðanlegra orsaka. Albatross ber hvorki ábyrgð né skaðabótaskyldu vegna slíkra breytinga. Upplýsingar um komur og brottfarir flugvéla má finna á heimasíðu Isavia. Ferðamenn bera sjálfir ábyrgð á að fylgjast með breytingum á flugi á vef eða í appi flugfélagsins og staðfesta flugtíma fyrir brottför og heimferð.

Mæta skal til innritunar eigi síðar en tveimur klukkustundum fyrir brottför með gild ferðaskilríki. Missi ferðamaður af flugi af eigin völdum ber hann kostnaðinn, og nýti hann ekki flug út getur flugfélag fellt niður heimflug. Sætaval og máltíðir eru aðeins innifalin ef það kemur fram. Börn yngri en tveggja ára fá ekki sæti og sitja hjá foreldri eða umsjónarmanni.

Við seinkun, aflýsingu eða neitun um far á ferðamaður rétt gagnvart flugfélaginu samkvæmt reglugerð (EB) nr. 261/2004 og skal beina kröfum þangað. Bóki ferðamaður flug sjálfur ber Albatross enga ábyrgð á því. Hann skal þá velja flugtíma sem passa við ferðina og á ekki rétt á endurgreiðslu missi hann af hluta hennar vegna flugsins.

9 Farangur og golfbúnaður

Farangursheimild fer eftir reglum hvers flugfélags, sjá vef viðkomandi flugfélags. Algengast er 20–23 kg í innritaðan farangur og 8–10 kg í handfarangur. Golfsett er aðeins innifalið ef það kemur fram í bókunarstaðfestingu.

Albatross ber ekki ábyrgð á skemmdum á farangri í flugi eða öðrum farartækjum, svo sem rútum og áætlunarbifreiðum, né á því ef farangur tapast eða berst seint. Verði skemmdir í flugi skal ferðamaður fá skriflega tjónaskýrslu hjá þjónustuaðila flugfélagsins á flugvellinum. Flugfélagið greiðir bætur samkvæmt alþjóðlegum reglum og skal krefjast þeirra þar. Án tjónaskýrslu fást engar bætur.

10 Gisting og akstur

Gisting, herbergistegund og máltíðir koma fram í ferðalýsingu, en innritunartímar fara eftir reglum gististaðar. Geti gististaður ekki afhent gistinguna útvegar Albatross sambærilega eða betri gistingu. Sé hún lakari fær ferðamaður verðlækkun.

Akstur er aðeins innifalinn á þeim leiðum og tímum sem fram koma í ferðalýsingu. Bíll bíður ekki eftir þeim sem mætir of seint, og nýti ferðamaður ekki aksturinn ber hann sjálfur kostnað af eigin ferðum.

11 Ferðaskilríki, heilsa og tryggingar

Ferðamaður ber ábyrgð á gildu vegabréfi, áritunum og öðrum skilyrðum til ferðalags, og skal fyrir bókun upplýsa um hreyfihömlun eða aðrar sérþarfir. Tryggingar eru ekki innifaldar. Ferðamenn eru hvattir til að kaupa ferða- og forfallatryggingu við bókun og hafa evrópska sjúkratryggingakortið meðferðis.

12 Háttsemi

Ferðamaður skal fara að lögum og reglum þjónustuaðila og ber ábyrgð á tjóni sem hann veldur. Vísa má honum úr ferð eða einstakri þjónustu ef háttsemi hans, ölvun eða vímuástand skapar hættu eða veldur alvarlegri röskun. Hann ber þá sjálfur kostnaðinn og fær ónýtta þjónustu ekki endurgreidda.

13 Ábyrgð og kvartanir

Albatross ber ábyrgð á að þjónusta í pakkaferð sé veitt samkvæmt samningi, hvort sem Albatross eða annar aðili veitir hana. Komi upp vandamál á ferð skal tilkynna það strax á info@albatrossgolf.is svo hægt sé að bæta úr. Í neyð skal fyrst hafa samband við neyðarþjónustu á staðnum.

Kvörtun sem ekki leysist á staðnum skal send skriflega sem fyrst, ásamt bókunarnúmeri og gögnum. Takist ekki að leysa ágreining má leita til viðeigandi úrskurðarnefndar utan dómstóla.

14 Persónuvernd

Albatross vinnur aðeins þær persónuupplýsingar sem þarf til að afgreiða bókun og miðlar þeim til gististaða, golfvalla og annarra þjónustuaðila eftir þörfum. Nánar er fjallað um það á síðunni Persónuvernd.

15 Lög og breytingar á skilmálum

Albatross áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur áður en bókun er staðfest. Um hverja bókun gilda skilmálarnir eins og þeir voru þegar hún var staðfest. Um samninginn gilda íslensk lög og ágreiningur fer fyrir íslenska dómstóla.

Vertu fyrstur til að fá ótrúleg tilboð á golfferðum